« janúar 2009 | Main | apríl 2009 »

miðvikudagur, 04 febrúar 2009

Ofsi

Ég lauk í gærkvöldi við að lesa Ofsa eftir Einar Kárason. Bókin er skáldsaga byggð á Íslandssögunni. Sagan er sögð frá sjónarhorni leikenda og gerenda í þeirri atburðarás sem fór af stað eftir að Gissur Þorvaldsson kom heim frá Noregi og reyndi að binda endi á Sturlunga-ó-öldina.

Mér fannst þessi saga afar skemmtileg lesning. Það var gaman að lesa Íslandssöguna út frá persónulegu sjónarhorni. Meðan á lestrinum stóð þá gleymdi ég því gersamlega að þetta væri skáldsaga og trúði því staðfast að þetta væri nákvæm lýsing á því sem gerðist. Nákvæm og sönn lýsing á hugarheimi þeirra sem komu við sögu.

Mínar uppáhalds sögur eru einmitt þær sem ég get lifað mig inn í og gleymt að um skáldskap sé að ræða. Það er þó næsta víst að ég taki fram Íslandssöguna í kvöld og lesi kaflann um Strurlungaöldina til þess að réttta mig af og rifja betur upp hina opinberu útgáfu sögunnar.

mánudagur, 02 febrúar 2009

Minni-hluta stjórn

Ég get ekki sagt að ég sé mikill stuðningsmaður ríkisins. Mér finnst afar leiðinlegt að sjá hvernig ríkið virðist með engu móti geta staðist að vera með puttana í öllum sköpuðum -- og vansköpuðum -- hlutum. Oft er um að ræða afar stóra hluti eins og ríkisstyrktar risavirkjanir, rándýrar tónlistarhallir, mikilfenglegar sendiráðsbyggingr, rausnarlega félagslega aðstoð við hátekjufólk, kostnaðarsöm framboð í öryggisráð og svo framvegis.

Það er mér því til mikillar gleði að loksins sé komin minni-hluta stjórn á Íslandi. Ég geri fastlega ráð fyrir að hún muni bera nafn með renntu og einbeiti sér að minni hlutum -- og dragi verulega úr ríkisbákninu. Eða er ég kannski að misskilja eitthvað?