« júní 2008 | Main | september 2008 »

fimmtudagur, 10 júlí 2008

Hvenær er best að finna hluti?

Fram til dagsins í dag hef ég verið á þeirri skoðun að eftir að hlutir týnast þá er jafnan nytsamlegt að finna þá aftur. Það gerðist í sjálfu sér ekkert í dag sem breytti þessari skoðun minni. Hins vegar komst ég að því í dag að til eru nytsamlegri atburðir en að finna hluti eftir að þeir týnast. Til dæmis er mun nytsamlegra að finna hluti áður en þeir týnast. Með því að finna hluti áður en þeir týnast er hægt að nota í eitthvað annað þann tíma sem ella færi í að leita að týnda hlutnum.

Í dag var síðasti vinnudagur minn fyrir tíu daga sumarfrí. Að því tilefni ákvað ég að taka til á skrifborðinu mínu áður en ég fór heim úr vinnunni. Tiltektin fólst aðallega í því að safna saman í einn bunka hinum og þessum blaðastöflum sem eiga það til að hrúgast upp á víð og dreif um skrifborðið og næsta nágrenni þess. Sameinaða bunkann setti ég síðan ofan í skúffu með það fyrir augum að fara í gegnum hann og sortera þegar ég kem til baka úr fríinu -- eða þegar skúffan er orðin full.

Eftir að hafa hreinsað blaðastaflana af borðinu kom ég auga á möppu sem hafði verið undir einum blaðabunkanum. Ég ákvað að láta möppuna fylgja blöðunum ofan í skúffuna. Áður en ég lagði möppuna frá mér þá datt mér í hug að forvitnast um það hvað væri í möppunni. Ég opnaði hana og sá að í henni voru ýmis gögn sem ég hafði safnað saman þegar ég var að vinna í skattaskýrslunni minni. Einnig fann ég í möppunni hlut sem ég hafði ekki átt von á að finna í vinnunni. Ég fann vegabréfið mitt.

Það varð mér til mikillar ánægju að finna vegabréfið mitt. Ekki þó vegna þess að það hafði verið týnt heldur þvert á móti vegna þess að það hafði ekki verið týnt. Ekki ennþá. Mér tókst sem sagt að finna vegabréfið áður en ég týndi því. Þar með sparaði ég mér heilmikinn tíma sem hefði ella farið í að leita að vegabréfinu í fyrramálið þegar ég fer að pakka niður nokkrum sokkum til þess að taka með í tíu daga heimsókn til Íslands.

sunnudagur, 06 júlí 2008

Hjól og sól

Undanfarna viku hef ég fylgst spenntur með veðurspánni fyrir daginn í dag. Mig langaði nefnilega að skella mér í hjólatúr. Veðurspáin breyttist reglulega. Fyrst var spáð þrumuveðri. Seinna var spáð skúrum. Sólskin fylgdi í kjölfarið en breyttist svo í hálfskýjað.

Í morgun bar spánum síðan ekki saman. Ein spáði sól en önnur rigningu. Ég tók meðaltalið af þessum tveimur spám og gerði ráð fyrir skýjuðu en þurru veðri. Þó svo að sólin hafi skinið í morgun þá ákvað því að skella mér í hjólatúr í þeirri von að það myndi þykkna upp fljótlega.

Planið var að hjóla einu leiðina yfir Tibidabo sem ég hafði ekki enn hjólað. Ég hjólaði því af stað í sólinni. Eftir að hafa farið einn (hefðbundinn) útúrdúr upp og niður ranga brekku þá komst ég á rétta braut og hélt af stað upp fjallið.

Eftir tæplega klukkutíma langa hjólaferð í sólinni gafst ég hins vegar upp. Það bólaði ekkert á skýjunum og það var of heitt fyrir mig að vera að puða í sólinni. Ég snéri því til baka til Barcelona.

Hér fyrir neðan eru nokkra myndir sem ég tók á leiðinni niður.

Form Mirador de Horta Tree Three chimneys From Mirador de Montbau Lizard marks on the sidwalk