borkur.net

Börkur Sigurbjörnsson
cv    dagbók    ljóð    photos    publications    research    running    shortstories    smásögur
Upp úr síðustu aldamótum byrjaði ég á því að halda dagbók á netinu. Ég var duglegur við skriftir fyrsta árið. Síðan þá hefur dagbókarfærslan verið heldur stopul.
Powered by TypePad
borkur.net » Dagbók Barkar

« febrúar 2008 | Main | apríl 2008 »

sunnudagur, 30 mars 2008

Tibidabo

Eftir að hafa um síðustu helgi ráðist á garðinn þar sem hann er hvað lægstur og hjólað um flatlendi þá var kominn tími á að lyfta hjólreiðunum á hærra plan. Ég skrapp því í dag ásamt vinnufélaga mínum upp á Tibidabo (512m). Eftir að hafa hjólað upp á toppinn settumst við niður og fengum okkur kaffi og croissant. Eftir kaffið fannst okkur of snemmt að snúa til baka til Barcelona. Við renndum okkur niður fjallið hinum megin -- niður til Sant Cugat del Vallès. Við stoppuðum stutt við í bænum. Rétt rúlluðum framhjólunum inn yfir bæjarmörkin og snérum svo við og héldum til baka upp á og yfir Tibidabo niður til Barcelona.

sunnudagur, 23 mars 2008

Páskahjól

Páskadagur er tilvalinn til þess að liggja í leti uppi í sófa og borða páskaegg. Þar sem að ég átti ekkert páskaegg þá ákvað ég þess í stað að skella mér í hjólatúr.

Ég hjólaði norður frá Barcelona meðfram ánni Besós. Fyrsti hluti ferðarinnar lá í gegnum ægifagurt landslag -- nema ef svo einkennilega vildi til að fólk teldi brotajárnshauga, múrsteinaverksmiðjur og geymslusvæði ekki til einstakra náttúruperla. Smám saman varð léttiðnaðurinn léttari og léttari og trjánum fjölgaði.

Eftir að hafa hjólað um það bil tuttugu kílómetra beygði ég inn í landið hjólaði meðfram ánni Congost í áttina til Granollers -- borgar sem er helst þekktust fyrir að eiga handboltalið sem Atli Hilmarsson lék með á sínum tíma. Leiðin lá framhjá Circuit de Catalunya og í gegnum iðnaðarhverfi Granollers.

Planið hafði verið að halda áfram frá Granollers lengra inní landið og pínulítið upp í fjöllin. En sökum kulda (u.þ.b. 10-12 gráður) og rigningar (u.þ.b. 10-12 dropar) ákvað ég þess í stað að skella mér á kaffihús í Granollers og fá mér samloku og kaffi. Á meðan ég renndi niður kaffinu skoðaði ég landakort með það fyrir augum að finna leið til baka sem lægi í gegnum færri iðnaðarsvæði.

Kortaglápið bar árangur. Leiðin til baka lá í gegnum sveitalegara landslag og þorpin Lliçà d'Amunt, Lliçà de Vall, Parets del Vallès og Mollet del Vallès (hið síðastnefnda er smáþorp á stærð við Kópavog, Garðabæ og einn Garðabæ í viðbót).

Útsýnið á leiðinni til baka var svo fagurt að ég ákvað að taka mér þrjá auka útsýnistúra. Það er að segja ég villtist þrisvar á leiðinni. Síðasti útúrdúrinn var all svakalegur. Ég hjólaði -- dauðþreyttur -- upp langa brekku norðurhluta Barcelona til þess eins að átta mig á því að brekkan var ekki beint hluti af stystu leið heim. Úr varð að leiðin til baka frá Granollers var þriðjungi lengri en leiðin til Granollers.

Þetta var hin fínasta páskahjólaferð. Hjólaði 70km án þess að leggja í nein fjöll.  Ég held ég leggi ekki í fjöllin þangað til að það fer að hlýna smá og áður en það fer að hlýna um of.

sunnudagur, 16 mars 2008

Síðasta vika

Eftir atburði síðustu viku get ég hiklaust mælt með ...

FC Barcelona players

... að skella sér á Camp Nou og sjá Barça spila. Það er ekki amalegt að sjá leikmann með íslenskt blóð í æðum koma inn á sem varamaður og skora sigumark leiksins. Og þó. Nema kannski ef íslenska blóðið er rækilega útþynnt í líkama Jon Dahl Tomasson sem skorar sigurmark Villarreal á móti Barça.

The Cure

... að sjá The Cure spila á tónleikum í Palau Sant Jordi ásamt 20.000 öðrum áhagendum. The Cure eru svo sannarlega ekki feimnir við að spila gömul og góð lög.

... tapas.

... að borða austurlennskan mat. Mæli sértaklega með El Japonés og I Wok You.

... að panta tímanlega borð á El Passadís del Pep. Fyrir þá sem gleyma því samt þá er tilvalið að skella sér á Can Sole í Barceloneta. Frábær fiskur. Ég mæli hins vegar með að fara varlega í að fá sér Remi Martin XO eftir matinn ... það er hætta á því að það hafi staðið aðeins of lengi í sólinni úti í glugga. Þess í staðinn mæli ég með að ljúka máltíðinni á orujo frá Galicia.

www.flickr.com
borkur.net's photostream