borkur.net

Börkur Sigurbjörnsson
cv    dagbók    ljóð    photos    publications    research    running    shortstories    smásögur
Upp úr síðustu aldamótum byrjaði ég á því að halda dagbók á netinu. Ég var duglegur við skriftir fyrsta árið. Síðan þá hefur dagbókarfærslan verið heldur stopul.
Powered by TypePad
borkur.net » Dagbók Barkar

« janúar 2008 | Main | mars 2008 »

sunnudagur, 03 febrúar 2008

Santa Clara

Vaknaði klukkan hálf átta í morgun í Santa Clara, CA (PST). Mér finnst nokkuð vel af sér vikið þar sem að ég vaknaði einig klukkan hálf átta í gærmorgun í Barcelona, ES (CET). Það sem bjargaði mér frá því að vera ekki á fótur fyrir allar aldir í morgun var að ég náði að halda mér vakandi fram eftir miðnætti í gærkvöldi.Ég var þó orðinn talsvert þreyttur undir lokin eftir að hafa verið vakandi í um 26 tíma.

Í dag er stefnan teki á San Francisco með nokkrum vinnufélögum. Svo tekur við vika af fundum áður stefnan verður sett á aðra helgi í SF. Meira um það síðar ...

www.flickr.com
borkur.net's photostream